1.10.2009 | 11:46
Fimmtudagur ;o)
Jæja þá er alveg komin tími til að krassa einhvað hér. Maður er orðin svo mikið á Facebook að maður gefur sér engan tíma í að blogga
Það er margt búið að ganga á hér og lenti litli maður í smá slysi en sem betur fer slappa hann betur en á horfðist
Eins og allir vita þá er hann mjög iðinn og uppátækjasamur. Og hefur það ekkert breist þó að hann hefi orðið svolítið sjokkeraður eftir þessa biltu. Eina sem hafðist útúr henni var að hann er byrjaður að ganga LOKSINS og alveg tíminn kominn á það, þar sem hann verður 17 mánaða eftir 17 daga.
Annars er allt fullt að gera, ég byrjuð í skólanum á nýjan leik, svo er meira en nóg í lopapeysu bisnesinum. Held að ég hefi ekki tíma fyrir jólin að gera það sem þarf að gera
En mér þykir þetta ekkert leiðinlegt!!!!
ég ætla samt ekki að hafa þetta of svo ég leggi mig aðeins í að skrifa oftar, betra er lítið en ekki neitt LOVYA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2009 | 10:47
sumarið 2009
Jæja nú er komið langt síðan ég hef bloggað... Var í hálfgerðu sumarfríi bara
Við erum sko búin að brasa mikið í sumar og búin að hafa það rosalega gott. Eftir allt atvinnuleysið á þessum bæ, fékk Ási loks vinnu og er sáttur að vinna hér í þorpinu. Ég að vísu er ekki enn komin með vinnu, en reyni að prjóna fyrir fólk lopapeysur og þess háttar. Maður má ekki alveg vera atvinnulaus, þó það sé líka vinna að vera heima með börnin.
en núna ætla ég ekki að hafa þetta lengra. Ætla bara láta vita að ég er mætt hér aftur eftir FRÍ, dem langar sko ekkert í veturinn, þó það sé fínt að það sé stundum skýjað. En hann kemur víst aftur LOVYA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.4.2009 | 09:57
Gleðilega páska!!!
Jæja nú ætla ég að skella smá bloggi hér. Það er búið að vera bara ferlega fínt hjá okkur. Ég hef verið dugleg að fara uppí Virkjun að prjóna með kellunum þar, nema í gær nennti ég engan vegin, þar sem við hjónin vorum næstum barnlaus. Við fórum í fermingaveislu á sunnudaginn, til Ingimundar Mána og eftir hana fór Sunneva til Svölu systur sinnar og Elvar vildi vera eftir hjá afa sínum. (hrikalegur afastrákur) Elvar er enn í dekri hjá afa og ætlar að vera hjá honum þar til á laugadaginn. Sunneva er búin að vera á sjálfstyrkinganámskeiði og var lokagiggið í gær og fórum við að horfa á hana, krakkarnir héldu tískusýningu og vá þvílíkt hvað þetta er frábært. Hún er bara hetja!! Nú ætlum við að hafa það bara huggó um páskana, ég á vísu eftir að taka tvö próf en illu er best af lokið og ætla ég að taka þau í kvöld
ég ætla ekki að hafa þetta lengra LOVYA
ps. á þriðjudag síðasta stóð minn litli maður upp, en hefur ekki viljað sína mömmu sinni það 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.3.2009 | 08:36
yndislegt líf ;o)
Úff hvernig skal nú orða þetta, en jihh hvað maður er sár og reiður fyrir hönd barna sinna
Elvar er svosem þannig lagað vanur því að þessi blóðtengdi aðili hans hringi ekki í hann á afmæli hans, en að hann hringi ekki í hvorugt þeirra og er ekki enn búin að hringja finnst mér ekki forsvaranlegt. Og hvað þá þegar þetta blóðtengda þarf að gera heimilislíf okkar óbærilega erfitt. Sem hann nýtur þess að gera
Ég er svo reið fyrir hönd barnanna, ég veit sjálf hvernig hann er, en krakkarnir eru hrikalega svekktir og sár bæði tvö
En svona er þetta, ég er búin að vera vona í 11 ár að batnandi mönnum er best að lifa, en hmmm honum verður aldrei viðbjargandi.
Nóg um þetta himpigimpi, ég ætla nú ekki að eyða of miklum orðum í það, enda efni í STÓRA bók. Við höfum haft það mjög fínt, krakkarnir voru ánægð með dagana sína enda var árshátíð í skólanum á afmæli Elvars og mikið gert uppúr flottheitunum hjá 10bekk. Foreldrar með skemmtiatriði og góður matur og læti. Það sem toppaði svo kvöldið var að Magni og hljómsveit héldu ball fyrir 7-10 bekk.... Vá hvað ég átti sæl og ánægð börn
Ég skellti mér svo uppí Virkjun á fimmtudaginn að prjóna með konunum þar, það var meiriháttar að komast aðeins frá heimilinu, þó ekki væri nema til þess að fara í fuglabjargið þar. Því munnurinn gekk hraðar en prjónarnir, eins og þær segja þar
En jæja ég ætla ekki samt að hafa þetta mikið lengra, varð bara að pirrast smá og segja aðeins fréttir. Það má líka segja samt frá því að Björn Þór og Ási hafa það líka fínt, karlinn ofvirkur á ryksugunni (enda bræddi hann næstum úr henni) og allir kátir hér. Jæja en LOVYA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2009 | 11:29
Afmælishrina hjá okkur ;o)
Jæja nú er að líða að afmælishrinu fjölskyldunnar!! Sæbjörg verður 9 ára á morgun 23.mars, Elvar verður 13 ára, 24.mars og svo verður Sunneva 16 ára 25.mars úff þá kemur að pásu í afmælum hjá okkur, þar til litli prinsinn verður 1 árs en það er nokkur tími þangað til
Sunneva byrjaði í ökuskólanum í gær og er í skólanum núna líka, en fær að keyra smá í dag
jihh hvað mér finnst þetta skrítið!!
Það er annars voða lítið að frétta, við kíktum jú í Virkjun á fimmtudaginn og ætla ég að mæta þar á þriðjudaginn næsta, til að prjóna með kellingunum þar
Ferlega gott aðeins að komast út..... spurning hvort maður fari bara ekki að notfæra sér það meira að kíkja þangað, enda mikið í boði fyrir atvinnulausa. Ási er búinn að vera sækja um vinnur á fullu, en lítið komið um svar, en þetta kemur segjum við bara
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Bið að heilsa Lovya
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.3.2009 | 10:42
bara smá blogg
Jæja nú er alveg komin tími á smá blogg hjá mér. Ég hef haft mjög lítinn tíma í einhvað annað en læra og prjóna pantanir
Ég á sem betur fer yndislegan mann sem hjálpar mér með heimilið og litla manninn, við elskum meira en allt. Björn Þór fékk svaka hitapest og er búinn að vera mikið veikur í nær 1 og hálfa viku. En hann er allur að koma til. Hann fór í læknisskoðun á fimmtudaginn síðasta og OMG hann er orðinn 79cm og 11kg
enginn smá lengja..... Annars er allt fínt að frétta, Sunneva alveg að taka skólann með tompi og fáum við bara hrós frá skólanum með hana. Og mamman stækkar og stækkar af stolti
Elvari gengur líka vel og er allur að taka sig á þar, og farin að hækka í lestri og einkunnum fyrir hin og þessi fög. Hann fær líka mikið hrós frá sínum kennara, því hann hefur bætt sig mikið frá því að við fluttum til Grindó. Ási er á fullu að reyna finna sér einhvað að gera, enda ekkert gaman að hanga svona. Ég slefa skólan er frekar löt suma dagana en vonandi ég taki í rassinn á mér fljótlega og hætti þessum dollaramerkjum sem maður fær í augun þegar fer að ganga að selja vestin og peysurnar
en jæja nú ætla ég að fara gera einhvað í mínum lærdómi og hætta að blaðra hér í bili LOVYABloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.2.2009 | 19:53
kíkja á útvarp sögu vefninn!!
Vá ég var að lesa alveg svakalega spá á útvarpi sögu síðunni um áframhaldandi hamfarir á Íslandi í náinni framtíð
Þetta er hrikalegt ef þessi miðill hefur rétt fyrir sér. En ég ætla samt að halda áfram að horfa framá veginn á æðruleysi mínu!!
Ég er búin að vera á fullu í ritgerðasmíðum og miðar einhvað áfram. En þarf samt meiri tíma, er nefninlega líka í því að prjóna og selja lopavesti og lopapeysur til að afla tekna á heimilið, enda veitir ekki af
En þetta kemur og allt lagast, mér finnst þetta samt ekkert leiðinlegt þar sem ég hef þá einhvað að gera annað en velta mér uppúr eymdinni
Nú er bara að standa saman og halda geðheilsu sem gegnur vel
Ef maður finnur fyrir titringi inní sér þá fer maður bara út að labba og brosir maður vel á eftir. Við erum að fá svo næturgest á morgun og verður hann hjá okkur fram á þriðjudag-miðvikudag og hlakkar mig mikið til. Það er vetrafrí í skólanum hjá Ómari og ætlar hann að vera hjá okkur á meðan. Jihh mig þykir svoooo mikið vænt um hann og hlakkar til að fá að knúsa hann!!! En jæja ég ætla að hætta í bili varð bara að benda á þetta með útvarp sögu, endilega kíkið á það! LOVYA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.2.2009 | 10:30
hæhæ og hóhó er að koma vor???
Jæja nú hefur maður verið annsi latur við að skrifa. En það er búið að vera heill hellingur að gera hjá mér
sem er bara gaman. Ég er á fullu í skólanum og þarf ég að skila núna 2 ritgerðum í lok þessa mánaðar og er önnur úr Snorra-Eddu og hin er úr bók sem heitir Hvid sommer og er á dönsku
En ég vona ég klóri mig alveg útúr því, en ég veit allavega um hvað bókin er, en svo er annað mál að skrifa hana á dönsku
Ég hef svo verið á fullu í því að prjóna og reyna selja vestin. Er allavega búin að selja tvær lopapeysur og er ég ánægð með það
Annars er voðalega lítið að frétta, það skeður ekkert, enginn kemur í heimsókn haha Nema þessi bróðir minn sem kom óvænt til Íslands, en hann kom ekkert hingað enda nóg að gera og við fórum bara í bæinn að hitta hann
Hann var samt alveg rosalegur, hringdi í heimasíman hjá okkur kl 1;30 aðfaranótt mánudags og hélt ég það væri einhvað að, þar sem það var nr hjá mömmu og pabba og nei þá var hann kominn til þeirra og lét engann vita um ferðir sínar! Mamma þurfti róandi og pabbi lá í stólnum sínum í sjokki, sagði hann. Og væri ég sko ekkert hissa
En frábært plott hjá honum og Árna bróður sem hjálpaði honum í allri lyginni. Hann náði í hann á flugvöllinn, svo hringir hann í m og p rétt áður en þeir renna í hlað og spyr pabba hvort þau hjón fái gistingu þar sem hann hafi verið að djamma, hmmm common ef pabbi hefði ekki verið sofandi hlýtur hann að hafa fattað það að maður sem er í fullri vinnu og meira til, fer valla að djamma á sunnudagskvöldi og ætla síðan að gista hjá honum.
Bara fyndið. En hrikalega gaman. En nú er Gunnar minn farinn aftur til Svíþjóðar og aldrei greynilega að vita hvenær hann plommpi hér á land aftur
En við hittum hann fyrr en okkur grunar. jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra ég er að kvelja son minn hér, sem vill mömmufang
LOVYA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2009 | 10:12
Skólinn byrjaður ;o)
Jæja nú er skólinn byrjaður á fullu hjá mér og því nóg að gera.... Ég er líka farin að prjóna á fullu og er að gera ullarvesti til að selja. Ég set inn myndir af þeim hér fljótlega
Það er um að gera að verða ekki eyrðalaus, enda er maður fljótur að detta í svartsýnina ef maður kemst í eyrðaleysið. Við erum samt dugleg að fara út að labba ef veður leifir, með Björn Þór. Ási er líka duglegur að hjóla. Ég er svo farin að skoppa hér heima í brennslu með sjónvarpinu
Hljómar ekki eins og það á að gera en ég er með dvd með Ágústu og skoppa hér með henni á morgnana... en með einn alltaf fyrir löppum mínum á meðan en það hefst
Við erum búin að vera reyna koma reglu á prinsinn og gegnur það ekki of vel stundum og vælir hann útí eitt. Hann var nefninlega farinn að snúa við sólahringnum fyrir okkur, hann var farinn að sofa hér um 1-2 á nóttunni, sem nátturlega gegnur ekki fyrir svona lítinn peyja
Ég var líka orðin verulega pirruð og þreytt. En þetta er að hafast, búið að taka nokkra daga. En annars er allt fínt að frétta af okkur hér. Krakkarnir í skólanum, kallinn sofandi hihi enda bara gott að geta skifst á að sofa aðeins lengur 
En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili LOVYA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2009 | 18:32
Hvað er að???
Úff hvað er eiginlega í gangi á þessu landi okkar! Fólk er farið að hafa áhyggjur af högum sínum og hvað gera þessir þingmenn?? Tja þeir fara að ræða um áfengi og einhvað rugl sem því fylgir í stað þess að ræða hvað á að gera fyrir fjölskylduna. Ég er svo dofin sjálf í dag og er að detta í algjört vonleysi, sem mig langar ekkert að vera í. En hvað getur maður. Þetta er orðin svo mikil óvissa, og spennandi ástand, verður maður með rafmagn og hita næstu mánaðamót? Á maður fyrir mjólk næstu mánaðamót? Verður einhvað til að borða? Maður er í óvissuferð, bara spennandi ástand sem er ævintýri útaf fyrir sig
Atvinnuleysissjóður, skrípaleikur..... Ríkisstjórn, skrípaleikur... Bara fyndið ástand.. Og hvað getur maður gert þegar manni er alls staðar potað útí horn. Ég á örugglega eftir að koma með rummsu í blöðin ef verður brotið á rétti mínum aftur eins og með fæðingaorlofið, ég ætla samt ekki að útskýra þetta neitt nánar fyrr en þar að kemur. Mér finnst allt svo dofið og rotið núna.
Ég reyni að fara út að labba á hverjum degi til að koma mér í jafnvægi, og fari nú ekki að góla á alla hér heima. Fá aðeins útrás fyrir reiðina með því að labba. En þá kemur bara einhvað annað í staðinn, ég labbaði í hálkunni í dag og OMG grindin er að drepa mig. Ég prjóna mikið, og því miður er allt garn að verða búið og hvað þá? Ég verð að hafa einhvað fyrir stafni. Reyni að hugsa vel um mig og mína, en dem eins og peningastandið er langar mig aldrei eins mikið í ís og núna hahah STÓRAN bragðaref, bara fyndið finnst mér, því ég er ekki mikið fyrir ís eða nammi
jæja ég ætla hætta núna LOVYA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)


flikk
krutti
lauja
stinas
upplist
bestust





